MYNDASÖGUR

°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°

 

,,Svona fór um sjóferð þá!"

Ævintýraþráin hefur löngum blundað í Boða. Hann hleypti því heimdraganum. Skildi konurnar eftir heima og fór til sjós!

Í landlegu í Vestmannaeyjum læddist að Boða illur grunur. Voru stelpurnar öruggar heima? Var Aþena byrjuð á lóðaríi?

Auðvitað fór Aþena á lóðarí og hver birtist ekki á hlaðinu nema þessi líka fjallmyndarlegi hundur, Odin v.d. Dolomiten. ,,Kallaðu mig bara Úran!"

Hann færði henni blóm, hann dekraði við hana og sleikti á henni eyrun.

Þau áttu mörg sameiginleg áhugamál, t.d. ketti, bolta og bein. Svo drukku þau saman úr drullupollunum.

,,Það sem maður ekki veit, særir mann ekki!" Boði kemur glaður af sjónum og á nú kærustu í hverri höfn.

 

               ,,Daglegt líf í Reykjahlíð"

Þar sem Aþena er fædd á Íslandi hefur hún engin próf frá Þýskalandi. En hestamennskan á hug hennar allan og Nökkvi er hennar uppáhald.

Á hverjum degi fer hún í útreiðartúr ásamt öðrum fjölskyldumeðlimum.

Þetta er mamman!

Obbossí! Þarna fauk húfan...

Það er sem húfan hafi fengið vængi!

Hún fýkur lengra og lengra, hátt upp til himins...

En Aþena hefur fylgst spennt með ferðalagi húfunnar, reiðubúin til að koma mömmu til bjargar!

Af áræðni og eljuskap sækir Aþena húfuna! ,,Þarna náði ég þér!"

Án þessa hika hleypur Aþena með húfuna til mömmunar.

Nökkvi er hálf hissa á þessu öllu saman.

Húfan komin í réttar hendur. Míó og Blíða horfa á og finnst Aþena lang-flottust!

Ekki urðu nú skakkaföllin fleiri í þessum útreiðartúr og allir komu heilir heim, líka splunkunýja húfan.