◊ Íslands Ísafoldar ræktun ◊
• Ásta Dóra Ingadóttir •

Reykjahlíð - Mosfellsdal
' Símar: 566-7368 & 862-2006
+ Netfang: asta@hundaskoli.is
Íslands Ísafoldar ræktun var sett á stofn árið 1989 með tilkomu hinnar eiginlegu ættmóður, Ísafoldar Rainnamess Hertha, sem fæddist tveimur árum áður.
Markmiðið með Íslands Ísafoldar ræktun er að rækta góða hunda sem er gaman að eiga og fólki þykir vænt um í mörg ár!
Um schäfer-gotið 18. október 2007
Jæja, loksins eru komnir schäfer-hvolpar eftir sjö ára hlé og er sumir nú orðnir ansi langeygir eftir því að fá hvolpinn sinn. T.d. er hún Hildur er búin að bíða lengi en hún hefur átt þrjá Ísafoldar-Schäferhunda á sl. 18 árum og getur ekki hugsað sér að leita á önnur mið.
Aþena og hvolparnir - saga Ísafoldar
Þessir hvolpar eru fimmti ættliður af hundum í beinan legg í minni eigu. Fyrst kom Ísafold en hún fæddist árið 1987 og var alla sína ævi á kafi í snjóflóðaleit. Hún eignaðist svo Vöku og Vaka eignaðist Fönix 1997 en Fönix flutti að heiman sem hvolpur. Guðmundur félagi minn eignaðist hann síðar og paraði með Uglu frá Þýskalandi og saman eignuðust þau Aþenu sem er tilvonandi móðir hvolpanna sem eru að líta dagsins ljós þessa dagana. Nú eru liðin nærri 20 ár frá því Ísafold fæddist og núna ætla ég að fá mér nýja Ísafold sem fæðist nærri 20 árum seinna en langa-lang-amma sín sem bjó hér fyrir langa löngu og eignaðist fyrstu schäferhvolpana sem fengu ættbókarskráningu á Íslandi.
Af hverju sama ættin?
Ástæðan fyrir því að ég held svona fast í ættina er einfaldlega sú að þetta er ferlega fínir hundar! Þeir eru vinnusamir, barngóðir, hlýðnir og með óvenju trausta skapgerð sem þýðir bara það að þeir láta sér ekki bregða við neitt og hundur sem er aldrei hræddur og heldur sínu striki þrátt fyrir umhverfisáreiti er alltaf góður og glaður!
Til hvers?
Markmiðið með Íslands Ísafoldar ræktun er að rækta góða hunda sem er gaman að eiga og fólki þyki vænt um í mörg ár.
Þetta er fyrsta pörun Aþenu og Úrans og það verður spennandi að fylgjast með þroska hvolpanna er fram líða stundir. Ég veit það fyrir víst að báðir foreldrarnir eru með trausta skapgerð, eru fallegir og heilbrigðir og meira getur maður svo sem gert. Guð og lukkan sjá um afganginn!
Kröfur um undaneldishunda
Foreldrarnir uppfylla allar kröfur sem gerðar eru til undaneldishunda hjá Hundaræktarfélagi Íslands.
En svo þið hafið ekki bara mín orð fyrir því hvað það er dásamlegt að eiga Íslands Ísafoldar hund, þá koma nokkur orð hér á síðu tileinkaðri reynslu og minningum fólks sem nýverið hefur kvatt Íslands Ísafoldar hundinn sinn.
Ásta Dóra Ingadóttir