Hundaręktun

Hugleišingar um hundaręktun 

Žegar Mašur fęr sér hvolp žarf mašur aš hafa žaš ķ huga aš hundurinn į eftir aš lifa nęstu 10-12  įr   og fyrir svona langtķma skuldbindingu borgar sig aš vanda vališ.
Vališ snżst um hreinręktaš eša ekki hreinręktaš, hund eša tķk, stórann eša lķtinn og svo eru tegundirnar oršnar ótalmargar sem til eru į landinu.

-En skķtt meš žetta alltsamann žvķ hér kemur ašalmįliš!

Žegar žś fęrš žér hund į hann aš hafa veriš innan um fólk allt sitt lķf. Ašal tķminn ķ žroskaferli hundsins, žar sem hann lęrir hvaš er ešlilegt umhverfi, er žegar hann er 3-7 VIKNA gamall Ž.e. įšur en žś fęrš hundinn ķ hendurnar. Žvķ bera ręktendur mikla įbyrgš! Hvolpar sem t.d. alast upp į stórum ręktunarbśum, žar sem ekki nęst aš sinna hverjum hundi sem einstaklingi į žessum aldri, eša hundar sem eru hafšir ķ śtihśsum į sveitabęjum, žar sem ekki eru börn eša einhver sem hefur įhuga į žvķ aš umgangast žį į hverjum degi, eiga į hęttu aš fara į mis viš žaš aš kynnast fólki nęgilega vel til aš lķta į žaš sem hluta af sinni nįttśrulegu fjölskyldu. Žar af leišandi veršur hundurin tortrygginn og hręddur viš fólk, og ķ framhaldi af žvķ, žegar hundurinn eldist, getur hręšslan breyttst ķ grimmd  og hundurinn oršiš  hęttulegur. 

Hundur sem sér ekki mann fyrr en um 12 vikna aldur veršur aldrei tamdari en refur utan śr móa. 

Skapgerš erfist og žvķ į ekki aš fį sér hvolp undan tķk sem er hrędd eša grimm, žaš į alltaf aš fį aš skoša hvolpa meš móšurina višstadda, (en ekki fyrr en žeir eru oršnir 3ja vikna).  og Žaš er best  aš fį aš skoša pabbann lķka og ef foreldrarnir eru traustir hundar, sem eru öruggir meš sig viš erfišar ašstęšur mį fį sér hvolp undan žeim.

Žaš į aldrei aš taka hvolp sem er hręddur viš fólk, og žaš į ekki aš taka hvolp bara af žvķ aš mašur vorkennir honum, eša vill "bjarga" honum.

Sem betur fer er Hundaręktarfélag Ķslands fariš aš bjóša uppį skapgeršarmat į hundum žar sem hundar eru prófašir viš żmsar ašstęšur. Žar eiga aš koma fram skapgeršargallar, séu einhverjir til stašar. žaš į ekki aš rękta undan hundum sem ekki standast skapgeršarmat. 

Žeir hundar sem ég hef hitt undanfarin misseri  og eru meš lélega skapgerš eru Chihuahua hundar, Border Collie  og Dobermanhundar (Border Collie vegna žess aš hann notar glefs žegar hann smalar kindum og žaš er oft alltof stutt ķ žaš aš hann grķpi til žess viš allar mögulegar ašstęšur og allar tegundirnar vegna žess aš žęr eru sérlega viškvęmar fyrir žvķ ef žeim er ekki sinnt nęgilega į tķmabilinu 3-7 vikna).

Ég hef sagt undanfarin misseri, žvķ fyrir nokkrum įrum voru žaš Silky Terrier og Beagle hundar og žar įšur Springer Spaniel og Amerķskur Cocker. Žetta liggur ķ ęttum og žegar veriš er aš rękta undan göllušum hundum koma gallašir hvolpar! Aš sjįlfsögšu eru lķka til góšir Dobermanhundar, góšir Border Collie hundar og Chihuahua, en žaš veršur aš vanda vališ og sętta sig frekar viš aš bķša eftir rétta hundinum heldur en aš taka hvolp undan tķk sem er tęp į taugum. Ręktendur halda stundum aš žaš sé hęgt aš bęta upp tķk meš lélega skapgerš meš žvķ aš setja į hana yndislegan hund, EN ŽAŠ GENGUR EKKI ! -Hvolparnir lęra og mótast af višhorfi móšurinnar til fólks. Ef móširin er slęm į taugum eru allar lķkur į aš hvolparnir verši žaš lķka! 

Žegar ręktendur eru aš rękta og selja hunda meš gallaša skapgerš, eru aš rękta peninganna vegna eša eru bara blindir fyrir göllunum ķ tķkinni sinni eru žeir aš plata fólk til aš kaupa sér  vandamįl sem leggur heilu fjölskyldurnar undir sig , žeir eru aš dreifa vandamįlum yfir saklausar fjölskyldur sem žurfa svo aš berjast viš vandamįlin mįnušum saman eša žar til žęr gefast upp. Tilfinningarnar sem fylgja žessu eru svo ómęlanlegar, žvķ fólk tengist hundinum sķnum, sama hvaš hann er lķtiš spennandi aš ešlisfari. 

-Svo er žaš hin hlišin!

Ręktendur eru mismundandi metnašarfullir og hafa ólķka reynslu af žvķ sem žeir eru aš gera og žaš er sama hvaš fólk vandar sig ķ ręktun og uppeldi hvolpa, žaš veršur aldrei allt 100 %, hver hundur hefur sķna skapgerš og hundar ķ goti eru eins ólķkir ķ sér og systkyn eru ķ mannafjölskyldum. Og undaneldisdżrin passa misvel saman.  

Hundar eru ekki klónašir, og žegar mašur kaupir sér hvolp er mašur alltaf aš hlutatil aš kaupa vonina! Žegar mašur fęr svo nżja hvolpinn sinn ķ hendurnar er komiš aš manni sjįlfum, og hundurinn veršur ekki betri en hann er hafšur og tamningin tekur tvö įr. Žaš er lķka sama hvaš foreldrarnir eru miklir meistrarar ķ sżningarhringnum, žaš er ekki žar meš sagt aš žeir gefi af sér meistara, og flestir hundar verša bara venjulegir hundar. 

Langflestir eru  heppnir meš hundinn  sem žeir fį og sem betur fer finnst flestum sinn hundur fallegasti og besti hundurinn ķ öllum heiminum.

        -Aš lokum og aš endingu!

Alltaf skal žaš koma mér jafn mikiš į óvart hve hundar eru yfir höfuš góš dżr og alveg ótrślegt hvaš žeir žola hve eigandinn veit lķtiš um hunda og hversu aušvelt žaš er ķ raun aš leiša žį af rangri braut žegar mašur hefur talaš eigandann ašeins til.

,,Eigendavandamįl - foreldravandamįl!"

Įsta Dóra Ingadóttir