Framhaldsnámskeið II
Fyrir þá allra hörðustu!

Framhaldsnámskeið II er eingöngu fyrir þá sem eru reiðubúnir að leggja töluvert á sig til að ná árangri.

Á framhaldsnámskeiði II er lögð áhersla á flóknari æfingar sem byggjast á grunni fyrri námskeiða í Gallerí Voff.

Meðal annars sækja hlut, skila hlut á hæl, ganga upp og yfir tröppuhindrun og margt, margt fleira.

Framhaldsnámskeið II er 8 skipti,  tveir tímar í senn. 7 verklegir tímar og próftími.

Námskeið þessi eru haldin tvisvar á ári, vor og haust og eru á laugardögum, utandyra. Hjálpartæki eru gotterí og / eða dót, t.d. bolti.

ATH! Takmarkaður fjöldi hunda kemst á hvert námskeið.

Til að komast inn á framhaldsnámskeið II þurfa bæði eigendur og hundar þeirra að hafa lokið grunnnámskeiði og framhaldsnámskeiði I í Gallerí Voff.

Skráning í s. 566-7368 á símatíma (Alla virka daga kl. 09:30-11:30 nema föstudaga)

 

Góða skemmtun!