Dýratamningar

Í Hundaskólanum Gallerí Voff eru líka tamin önnur dýr sem

hafa víða komið fram í bíómyndum, í auglýsingum og á sviði. 

 

Sem nokkur dæmi mætti nefna
Carn-Terrier tíkina Tönju, sem lék Tótó í Borgarleikhúsinu í Galdrakarlinum í Oz.

Blendingstíkina Týru sem lék í Myrkrahöfðingjanum.
Íslenski fjárhundurinn Pjakkur lék í fjölskyldumyndinni Ikingut.
Labradorhundurinn Keli í Villiljósi, A Little Trip to Heaven o.m.fl. verkefnum
Kindin Góa lék á sviði í Loftkastalanum í Sirkus Skara Skrípó.
Kettirnir Brandur og Snotra í kvikmyndunum Mávahlátri, Nóa Albónóa og Regínu.
Hrúturinn Skuggi sem lék í bíómyndinni Hafið, austur á Neskaupstað. Skuggi átti stórleik þar.
Þýski fjárhundurinn, gæðablóðið hann Elvis sem lék svívirðilega grimman hund í stuttmyndinni  Móðan. T.d. þurfti að láta smíða uppí hann sérstakan góm svo hann virtist grimmilegri og vígalegri, þar sem Elvis blessunin var svo mikið gæðablóð.
Svo var það hrúturinn Freyr sem lék í Stuðmanna-myndinni Í takt við tímann

Auk þess mætti nefna fjöldan allan af auglýsingum og fleiri leikhúsverkum þar sem sérverkefni í dýratamningum á alls kyns dýrum hefur komið við sögu.

 

Auglýsingagerð!

 

      Mikið umstang við gerð erlendrar auglýsingar við fjörur Íslands!    "...and ACTION!"    Það gætir víst flóðs jafnt sem fjöru og það hratt á Íslandi! Tökuliðið átti fótum fjör að launa!    Leikarinn litli var alveg búinn eftir langan dag í kuldalegri fjöru, bíðandi eftir að mannfólkið gerði tækin sín klár!    

 

Kvikmyndavinna - Í takt við tímann

              

Stuðmenn með hrútinn Frey en Ásta Dóra stýrði honum gegnum erfiðar tökurnar á kvikmyndinni Í takt við tímann sem er óbeint framhald á „Með allt á hreinu‟

 

 

"A Little Trip to Heaven"

      Baltasar Kormákur og Forest Whitaker við tökur á "A Little Trip to Heaven"

Baltasar Kormákur og Forest Whitaker á milli atriða. Labradorhundurinn Keli var þjálfaður sérstaklega fyrir tökur á kvikmyndinni "A Little Trip to Heaven"

 

 

 

Hér má svo til gamans sjá Gæsapabba, húsbóndann í Reykjahlíðinni, halda ræðuGæsapabbi heldur ræðu um ýkjur fuglaflensunnar, atferli, hegðun og framkomu í sinn garð. Auðmjúkir hlusta enda húsbónd-inn að ibba gogg, bókstaflega! yfir lærisveinum sínum um fuglaflensur, hegðun, atferli og framkomu í sinn garð ásamt fleiru uppbyggilegu sem allir hafa gott af að heyra (A.m.k. nýtur Gæsapabbi þess að hlusta á sjálfan sig messa yfir lýðnum).

Víða hefur reynsla við dýraþjálfun og tamningar komið að góðum notum og verið eftirsóknarverð í kvikmyndum, leikhúsi og auglýsingum.