FRÉTTIR
ÁRSINS 2007
19. nóvember 2007
Ég tók myndir af hvolpunum þegar þeir voru búnir að klára námskeiðið og þeir voru allir duglegir og í fínu
standi. Eigendurnir líka. Moli og Maja fengu gullpeninginn og að gamni spurði ég eigendur þeirra
nokkurraspurninga meðal annars hvort þeir vildu skipta á hundinum sínum og Lexus, þau sögðu öll nei nema
dóttir mín sem var ,,þvinguð" til að mæta með Ísafold á námskeiðið, -hún sagði já!
Ísbjörn heitir núna Ígor og mamma hans Kristín (Mynd 55), Sigurbjörn á Ísis (Mynd 52), María á Mola (Mynd 50),
Hildur á Ísold (58) og á myndinni er Ólafía með Ísafold (60).
Þau fengu öll yfir 9 í einkunn á prófinu. Sjá nýjar myndir
Hundarnir á myndum 28,34,43 eru Kolka pólskur fjárhundur og Garpur labrador en hún var aðalleikarinn í efni
sem var verið að gera fyrir þýska sjónvarpið og var tekið á Búðum (Garpur var til vara).
19. október 2007
Uppfærslur á heimasíðunni standa yfir þessa dagana. Nýjar fréttir og myndir væntanlegar!
25. febrúar 2007
Nú fer hver að verða síðastur til að skrá sig á framhaldsnámskeið í vor. Enn eru nokkur pláss laus og
hvet ég alla áhugasama að kynna sér málið og hafa samband.
16. febrúar 2007
Hvolpapartí var haldið sl. sunnudag og mættu flestir með hvolpana sína úr goti þeirra Aþenu og Úrans.
Allir eru við mjög góða heilsu og eldhressir og sprækir eins og meðfylgjandi myndir sína.
Á hundafundinum var fólki kennt hvernig á að skamma hvolpana ef þeir eru að glefsa og ef þeir eru ekki
stilltir þegar það er verið að eiga við þá, s.s. skoða tennur og klippa klær.
Við töluðum líka um væl sem getur verið áhættuþáttur, hvernig á að koma fram við hundinn
svo maður sé ekki óafvitandi að hvetja hann til að væla.
Ásamt myndum af hópum á námskeiðum má sjá hvolpana Ísadóru Garún, Ísis, Ísafold og Ísold.
Strákana Ísbjörn og Ísmola vantaði bara en þeir komust því miður ekki.
21. janúar 2007
Nokkrar skemmtilegar myndir!
12. janúar 2007
Nýja árið gekk ljúflega í garð hjá okkur og ber upphaf þess með sér von um traust og gott,
farsælt og gæfuríkt ár hjá okkur öllum. Nú eru hvolpar Aþenu og Úran orðnir 11 vikna gamlir
og heilsast öllum mjög vel. Parvó-sprautur hjá öllum fyrir 15. janúar og eyrun á þessum
gormum eru að reisa sig glæsilega og tímanlega. Eigendur endilega sendið okkur nýjar myndir!
Best að koma þeim beint til vefstjóra á netfangið nykur@nykur.is og þá setjum við upp smá seríu.
Svo hittast allir hressir í hvolpapartíinu sem er á næsta leyti!
FRÉTTIR
ÁRSINS 2006
Schäfer-hvolpar fæddust 18. október 2006!
„Loppurnar okkar”
Pöruð voru saman:
|
X |
||
|
,,Aþena" |
,,Úran"
|
31. desember 2006
Þá hafa allir hvolparnir farið sælir og glaðir á sín nýju heimili og fréttir af þeim berast góðar og skemmtilegar.
Allir fengu heimili nema einn reyndar en það er hann Íslands Ísafoldar Ísbjörn Drengur en hann er til sölu vegna forfalla á síðustu stundu. Svona getur alltaf gerst og áhugasamir endilega hafið samband. Nánari lýsing á hundinum er að finna hér á síðunni.
Hér má svo sjá hann Íslands Ísafoldar Ísmola eða „Mola‟ eins og hann er kallaður í daglegu tali. Já, þeir stækka ört og um að gera fyrir hvolpaeigendur að njóta tímans sem hundurinn þeirra er hvolpur því sá tími kemur ekki aftur. Þótt sumum finnist fyrirhöfnin og erfiðið ansi mikið skilar það sér allt ef vel er að staðið og hundurinn öðlast traust til eigenda sinna og öryggi gagnvart umheiminum án ótta við alla hluti sem er gríðarlega mikilvægt. Svo má endilega kynna sér námskeiðin sem í boði eru hér á vefnum en þau má sjá á hliðarstikunni hér til vinstri.
Moli & Milla
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
' Símar: 566-7368 & 862-2006
+ Netfang: asta@hundaskoli.is
10. desember 2006
Þann 9. desember hittust aftur tilvonandi foreldrar hvolpanna í hvolpapartíi. Þar fengu allir að sjá hvern hvolpanna þeir fengju og eru nú 8 vikur nærri liðnar fá fæðingu þeirra. Þá geta hvolparnir farið heim með nýju eigendunum sínum. Allir hvolparnir hafa verið örmerktir, skoðaðir af dýralækni, bólusettir og ormahreinsaðir. Allir eru þeir mjög hraustir og vel á sig komnir.
' Símar: 566-7368 & 862-2006
+ Netfang: asta@hundaskoli.is
Það er alltaf mikið líf & fjör í Reykjahlíð!
15. nóvember 2006
Þann 12. nóvember sl. hittust væntanlegir foreldrar hvolpanna saman í kennslustofu Gallerí-Voff og fengu að faðma litlu krílin, hitta foreldrana og ræða málin. Væntanlegur afhendingadagur hvolpanna er í kringum 15. desember nk. en þá far hvolparnir að heiman og inn á sín framtíðarheimili.
8. nóvember 2006
Hvolparnir braggast mjög vel og stækka afar ört. Aþenu heilsast mjög vel og er hin sprækasta. Nú er síðan Traustir vinir komin í loftið sem minnist látinna Íslands Ísafoldar hunda sem gáfu fólki gleði og fengu gott líf. Myndir og minningarorð tengd hverjum hundi fyrir sig eru á síðunni og hvetjum við fólk sem átt hefur Íslands Ísafoldar hund að setja sig í samband við Ástu Dóru eða Hallgrím vef sem vinna úr myndum og upplýsingum.
18. október 2006
Jæja, þá eru hvolparnir fæddir! Fjórar heilbrigðar tíkur og tveir frískir hundar! Aþena stóð sig með prýði og heilsast bæði móður og afkvæmum vel!
◊ Íslands Ísafoldar ræktun ◊
-Ásta Dóra Ingadóttir
Jæja, loksins eru að koma schäfer-hvolpar eftir sjö ára hlé og er sumir nú orðnir ansi langeygir eftir því að fá hvolpinn sinn. T.d. er hún Hildur er búin að bíða lengi en hún hefur átt þrjá Ísafoldar-Schäferhunda á sl. 18 árum og getur ekki hugsað sér að leita á önnur mið.
Aþena og hvolparnir - saga Ísafoldar
Þessir hvolpar eru fimmti ættliður af hundum í beinan legg í minni eigu. Fyrst kom Ísafold en hún fæddist árið 1987 og var alla sína ævi á kafi í snjóflóðaleit. Hún eignaðist svo Vöku og Vaka eignaðist Fönix 1997 en Fönix flutti að heiman sem hvolpur. Guðmundur félagi minn eignaðist hann síðar og paraði með Uglu frá Þýskalandi og saman eignuðust þau Aþenu sem er tilvonandi móðir hvolpanna sem eru að líta dagsins ljós þessa dagana. Nú eru liðin nærri 20 ár frá því Ísafold fæddist og núna ætla ég að fá mér nýja Ísafold sem fæðist nærri 20 árum seinna en langa-lang-amma sín sem bjó hér fyrir langa löngu og eignaðist fyrstu schäferhvolpana sem fengu ættbókarskráningu á Íslandi.
Ástæðan fyrir því að ég held svona fast í ættina er einfaldlega sú að þetta er ferlega fínir hundar! Þeir eru vinnusamir, barngóðir, hlýðnir og með óvenju trausta skapgerð sem þýðir bara það að þeir láta sér ekki bregða við neitt og hundur sem er aldrei hræddur og heldur sínu striki þrátt fyrir umhverfisáreiti er alltaf góður og glaður!
Markmiðið með Íslands Ísafoldar ræktun er að rækta góða hunda sem er gaman að eiga og fólki þyki vænt um í mörg ár.
Þetta er fyrsta pörun Aþenu og Úrans og það verður spennandi að fylgjast með þroska hvolpanna er fram líða stundir. Ég veit það fyrir víst að báðir foreldrarnir eru með trausta skapgerð, eru fallegir og heilbrigðir og meira getur maður svo sem gert. Guð og lukkan sjá um afganginn!
Foreldrarnir uppfylla allar kröfur sem gerðar eru til undaneldishunda hjá Hundaræktarfélagi Íslands.
En svo þið hafið ekki bara mín orð fyrir því hvað það er dásamlegt að eiga Íslands Ísafoldar hund, þá koma nokkur orð hér á síðu tileinkaðri reynslu og minningum fólks sem nýverið hefur kvatt Íslands Ísafoldar hundinn sinn.
°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°
9. október 2006
Uppfærslum og viðgerðum á síðunni er nú að ljúka eftir mikla tiltekt, innlögn nýs efnis, hönnun nýrra síða, myndvinnslu o.s.frv. Allar ábendingar vel þegnar. -Vefumsjónarmaður.
Áætlað er að Aþena muni eiga hvolpana um það bil á 17-20. október en meðgöngutími hunda er einungis 63 dagar.
Allt lítur mjög vel út og bíður fólk víða spennt eftir fæðingunni.
Enn má þó setja sig í samband ef áhugi er fyrir að koma hvolpi á gott heimili.
' Símar: 566-7368 & 862-2006
+ Netfang: asta@hundaskoli.is
4. október 2006
Aþena er orðin verulega sver og von er á hvolpunum innan fárra daga.
°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°°
Myndasögur um tilhugalíf og atferli foreldranna
,,Svona fór um sjóferð þá!"
![]()
Ævintýraþráin hefur löngum blundað í Boða. Hann hleypti því heimdraganum. Skildi konurnar eftir heima og fór til sjós!
![]()
Í landlegu í Vestmannaeyjum læddist að Boða illur grunur. Voru stelpurnar öruggar heima? Var Aþena byrjuð á lóðaríi?
![]()
Auðvitað fór Aþena á lóðarí og hver birtist ekki á hlaðinu nema þessi líka fjallmyndarlegi hundur, Odin v.d. Dolomiten. ,,Kallaðu mig bara Úran!"
![]()
Hann færði henni blóm, hann dekraði við hana og sleikti á henni eyrun.
![]()
Þau áttu mörg sameiginleg áhugamál, t.d. ketti, bolta og bein. Svo drukku þau saman úr drullupollunum.
![]()
,,Það sem maður ekki veit, særir mann ekki!" Boði kemur glaður af sjónum og á nú kærustu í hverri höfn.
,,Daglegt líf í Reykjahlíð"
![]()
Þar sem Aþena er fædd á Íslandi hefur hún engin próf frá Þýskalandi. En hestamennskan á hug hennar allan og Nökkvi er hennar uppáhald.
![]()
Á hverjum degi fer hún í útreiðartúr ásamt öðrum fjölskyldumeðlimum.
![]()
Þetta er mamman!
![]()
Obbossí! Þarna fauk húfan...
![]()
Það er sem húfan hafi fengið vængi!
![]()
Hún fýkur lengra og lengra, hátt upp til himins...
![]()
En Aþena hefur fylgst spennt með ferðalagi húfunnar, reiðubúin til að koma mömmu til bjargar!
![]()
Af áræðni og eljuskap sækir Aþena húfuna! ,,Þarna náði ég þér!"
![]()
Án þessa hika hleypur Aþena með húfuna til mömmunar.
![]()
Nökkvi er hálf hissa á þessu öllu saman.
![]()
Húfan komin í réttar hendur. Míó og Blíða horfa á og finnst Aþena lang-flottust!
![]()
Ekki urðu nú skakkaföllin fleiri í þessum útreiðartúr og allir komu heilir heim, líka splunkunýja húfan.
Símar 566-7368 & 862-2006 eða á asta@hundaskoli.is
Smelltu á tengilinn hér fyrir ofan til að skoða eldri fréttir og myndir með
þeim.