Hundaskólinn Gallerí Voff er brautryðjandi á Íslandi í athyglisþjálfun hunda og hefur verið starfræktur frá árinu 1991.

Í athyglisþjálfun er hundinum umbunað með matarverðlaunum fyrir það að fylgjast með og vinna fyrir húsbónda sinn. 

Eigandi hundaskólans, Ásta Dóra Ingadóttir, DBC (Dog Behaviour Consultant), hefur yfir 20 ára reynslu af hundatamningum og m.a. sérhæft sig í hegðunarvandamálum hunda.

En það lærði hún hjá John Rogerson í The Northern Centre for Animal Behaviour á Englandi.

Hundaskólinn er starfræktur að Reykjahlíð í Mosfellsdal. Boðið er uppá grunnnámskeið, framhaldsnámskeið og einkatíma annarsvegar en hinsvegar allar dýratamningar fyrir kvikmyndir, leikhús og auglýsingar.

Símatími Gallerí Voff - Hundaskóla er alla virka daga nema föstudaga milli kl. 09:30 til 11:30.

        F R É T T A S Í Ð A N